



| Það var vaskur hópur sem lagði af stað austur í Gunnarsholt eftir vinnu í gær. Erindið var að planta nokkrum trjám í Hekluskógaverkefninu og gera tilraun í leiðinni. |
| Tilraunin fólst í því að helmingur plantnanna fékk skvettu af fjölliðunni Aquasorb með sér í holuna, en Aquasorb hefur þann eiginleika að geta bundið vatn, allt að fimmhundruðfalda þyngd sína.
|




| Hópnum til halds og trausts var Hreinn Óskarsson, verkefnisstjóri. Manni leið eins og foreldri, sem fylgist með barni sínu í hitakassa og veltir fyrir sér hvort það muni lifa, þegar maður virti fyrir sér veikburða birkihríslurnar þar sem þær kúrðu í holum sínum, og það var ekki laust við að hópurinn fylltist efasemdum um framgang þessa verkefnis þar sem hann stóð í jaðri Keldnahrauns í norðannæðingnum, með vitin full af sandi, og horfði til Heklu í norðaustri. |


| Þau voru mörg hraunin í sjónmáli: Eldiviðarhraun, Skógshraun, Langvíuhraun, Pálssteinshraun og Austurhraunin, svo nokkur séu nefnd. En þau kalla ekki allt ömmu sína hjá Landgræðslunni eins og fram kom í stuttri framsögu Sveins Runólfssonar, landgræðslustjóra, þegar hann tók á móti hópnum og stiklaði á stóru í aldarlangri sögu landgræðslu á svæðinu. |

|
Heilt yfir einstaklega ánægjuleg upplifun og gaman að geta lagt þessu verkefni lið, þótt þessar 200 hríslur hafi virkað hálf einmana þarna í auðninni. Við munum fylgjast vel með þessum litla reit og hvernig ,,trjánum okkar'' farnast. |
Hekluskógar
GPS mynd


