Gæðastefna Gróco ehf er:
- Að fylgja lögum, reglugerðum og stöðlum í hvívetna.
- Að sýna samfélagslega ábyrgð í orði og verki.
- Að vera traust og ábyrgt fyrirtæki, veita viðskiptavinum sínum hraða, sveigjanlega og hagkvæma þjónustu og veita faglega og vandaða ráðgjöf.
- Að hafa jafnan á að skipa hæfu og vel menntuðu starfsfólki, stuðla að símenntun þess, ánægju og vellíðan í starfi. Áhersla er lögð á að starfsmenn þekki og tileinki sér gæðastefnu fyrirtækisins og vinni samkvæmt henni.
- Að gæta jafnræðis og jafnréttis.
- Að uppfylla kröfur um hollustu, öryggi og umhverfi.
- Að vera fjölskylduvænt fyrirtæki.
Framkvæmdastjóri og stjórn samræma aðgerðir á sviði gæðamála og gæðastefnan er endurskoðuð reglulega.
19. október 2009.
Ari Kr. Sæmundsen
framkvæmdastjóri