Sérlyf frá Nycomed

Upplýsingar um ábendingar eru fengnar á vef Lyfjastofnunar og í Sérlyfjaskrá er að finna frekari upplýsingar um þessi lyf. 

Circadin  (melatoninum)
Lyfjastofnun.is: > Lyfjatexti  > Fylgiseðill  
Ábendingar: Circadin er ætlað sem einlyfja meðferð til skamms tíma við frumkomnu svefnleysi sem einkennist af litlum svefngæðum hjá sjúklingum á aldrinum 55 ára eða eldri.

Curosurf  (fosfólípíð og protein úr svínalungum)
Lyfjastofnun.is: > Lyfjatexti
Ábendingar: Öndunarerfiðleikar (respiratory distress syndrome, RDS) hjá nýburum, sem eru yfir 700 g. Sjúkdómsvarnandi notkun hjá fyrirburum með áætlaðan getnaðaraldur 24 til 31 vika, þar sem hætta er á öndunarerfiðleikum (RDS) eða merki eru um skort á yfirborðsvirkum efnum í lungum.

Estrogel  (estradiolum hemihydratum)
Lyfjastofnun.is: > Lyfjatexti  > Fylgiseðill  
Ábendingar: Uppbótarmeðferð á einkennum : östrógenskorts við tíðahvörf. Til varnar beinþynningu eftir tíðahvörf.

Furix  (fúrósemíð) tafla 
Lyfjastofnun.is: > Lyfjatexti  > Fylgiseðill   
Ábendingar: Bjúgur, Háþrýstingur.

Furix  (fúrósemíð) stungulyf
Lyfjastofnun.is: > Lyfjatexti 
Ábendingar: Bjúgur, Alvarlegur háþrýstingur, Þvagræsing, Bráð og langvinn nýrnabilun.

Hyalgan  (natrii hyaluronas)
Lyfjastofnun.is: > Lyfjatexti  > Fylgiseðill  
Ábendingar: Dregur úr verkjum til lengri tíma og eykur hreyfigetu hnéliðar vegna slitgigtar.

Kestine  (ebastinum)
Lyfjastofnun.is: > Lyfjatexti  > Fylgiseðill  
Ábendingar: Ofnæmissjúkdómar, einkum ofsakláði, frjónæmi og nefslímubólga af völdum ofnæmis. Langvinnur ofsakláði.

Levaxin*  (levótýroxín)
Lyfjastofnun.is: > Lyfjatexti  > Fylgiseðill  
Ábendingar: Vanstarfsemi skjaldkirtils hjá fullorðnum og börnum.
* Var áður skráð sem Thyroxin-Natrium

Olmetec  (olmesartanum INN medoxomíl)
Lyfjastofnun.is: > Lyfjatexti  > Fylgiseðill   
Ábendingar: Til meðferðar á háþrýstingi (essential hypertension).

Spirix  (spirolactonum)
Lyfjastofnun.is: > Lyfjatexti  > Fylgiseðill  
Ábendingar: Skinuholsvökvi og bjúgur í tengslum við offramleiðslu aldósteróns. Háþrýstingur af völdum offramleiðslu aldósteróns.Aldósterónheilkenni (primary hyperaldosteronism). Stuðningsmeðferð með hefðbundinni meðferð við langvinnri hjartabilun.

TachoSil  (mannafíbrínógen 5,5 mg og mannatrombín 2,0 a.e./cm2)
Lyfjastofnun.is: > Lyfjatexti  > Fylgiseðill  
Ábendingar: TachoSil er ætlað sem stuðningsmeðferð við skurðaðgerðir til að bæta stöðvun blæðinga þar sem hefðbundnar aðferðir hafa ekki nægt. Aðeins hefur verið sýnt fram á virkni við lifrarskurðaðgerðir.

Nánari upplýsingar í síma 568-8533. Pantanir hjá Parlogis ehf í síma 590-0200.

www.nycomed.dk   www.nycomed.com   www.lyfjastofnun.is

Gróco/Nycomed - Virk samkeppni.





Gróco ehf. | Þverholt 14 | 105 Reykjavík | Iceland | Tel: +354 568-8533 | Fax: +354 568-0304 | info(hjá)groco.is